SVEITARSTJÓRN BORGARBYGGÐAR FUNDARBOÐ FUNDUR Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar fimmtudaginn 8. september 2016 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 16:00. DAGSKRÁ Skýrsla sveitarstjóra. Fundargerð sveitarstjórnar 11.8. (143) Fundargerðir byggðarráðs 18.8., 25.8., 01.09. (385, 386, 387) Fundargerðir fræðslunefndar 23.8. (144) Fundargerð Velferðarnefndar 9. (64) Fundargerð Fjallskilanefndar BSN 28.8. (36) Fundargerð Fjallskilan. Oddstaðaréttar 28.8. …
Heimasíða Borgarbyggðar
Ný heimasíða Borgarbyggðar tekin í notkun sl. vor. Notendur fundu fljótt fyrir því að hún var þung í uppkeyrslu og því hefur verið unnið að því í sumar að komast fyrir ástæður þess að svo var. Nú hefur verið komist fyrir vandann og ætti þar með að vera úr sögunni. Nú tekur við vinna við að gera hana enn notendavænni …
Útsvarslið Borgarbyggðar
Borgarbyggð tekur nú að nýju þátt í Útsvari RÚV í vetur. Liðið skipa eftirtaldir einstaklingar: Heiðar Lind Hansson frá Borgarnesi sagnfræðingur; Edda Arinbjarnar frá Húsafelli ferðamálafrömuður; Bryndís Geirsdóttir frá Árdal framleiðandi; Ekki er vitað nákvæmlega hvenær, og þá við hverja, liðið keppir í fyrstu umferð en það kemur í ljós fljótlega. (mynd af vef Rúv.)
Laus störf hjá Slökkviliði Borgarbyggðar
Slökkvilið Borgarbyggðar auglýsir hér með eftir starfskröftum í störf hlutastarfandi slökkviliðsmanna á slökkvistöðinni í Borgarnesi. Fyrir ráðningu er eftirfarandi. Vera orðin fullra 20 ára. Búseta í Borgarnesi. Hreint 24 mánaða sakavottorð. Vera andlega og líkamlega hraustur. Hafa góða sjón, heyrn og rétt litarskyn. Aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið, mikill kostur þó ekki skilyrði Vera ekki haldin lofthræðslu né innilokunarkennd. …
Laust starf í Grunnskóla Borgarfjarðar
Grunnskóli Borgarfjarðar Kleppjárnsreykjadeild auglýsir eftir matreiðslumanni/matráði tímabundið vegna afleysinga í mötuneyti skólans. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Reynsla af rekstri mötuneytis er æskileg og færni í mannlegum samskiptum mikilvæg. Frekari upplýsingar gefur Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 847-9262 eða Ingibjörg Adda Konráðsdóttir deildarstjóri í síma 840-1520 einnig má senda fyrirspurn á netföngin ingibjorg.inga@gbf.is og …
Fjöldi starfsmanna skóla í námi
Þeir starfsmenn skóla sem hyggjast stunda nám samhliða starfi geta sótt um styrk til Borgarbyggðar. Á það við um starfsmenn sem stunda nám á námsbraut framhaldsskóla á skólaliðabraut, starfsmenn sem stunda grunnnám í fjarnámi á háskólastigi til leikskóla, grunnskóla og íþrótta- eða tónlistarkennaraprófs eða starfsmenn sem stunda framhaldsnám á háskólastigi. Styrkurinn felst í því að starfsmenn halda launum þann tíma …
Fjallskil 2016
Allir fjallskilaseðlar vegna fjallskila 2016 eru núna aðgengilegir fyrir notendur á þessari síðu https://borgarbyggd.is/thjonusta/landbunadarmal/
Jacek í Borgarneskirkju
Sunnudaginn 4. september kl. 17:00 flytur Jacek Tosik-Warszawiak píanóverk eftir Chopin. Einnig munu hjónin Theodóra Þorsteinsdóttir og Olgeir Helgi Ragnarsson syngja nokkur íslensk og erlend lög með honum á tónleikunum. Tónleikana heldur Jacek til minningar um vin sinn Magnús Valsson sem lést fyrr á þessu ári. Jacek er Borgfirðingum að góðu kunnur, hann kenndi við Tónlistarskóla Borgarfjarðar, stjórnaði Karlakórnum Söngbræðrum …
STUÐNINGSFJÖLSKYLDUR – STUÐNINGUR VIÐ BÖRN
Félagsþjónusta Borgarbyggðar leitar að fólki sem er tilbúið til að gerast stuðningsfjölskylda. Hlutverkið felst í að taka barn/börn inn á heimilið t.d. yfir helgi. Um er að ræða börn með fötlun eða börn sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Við leitum einnig að fólki sem er tilbúið til að vera stuðningur við börn / unglinga nokkra tíma á viku – …
Starf leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla hafið
Leikskólar í Borgarbyggð opnuðu eftir sumarlokun í byrjun ágúst. Starfið hefur farið vel af stað, börnin komið sæl og útitekin eftir gott sumarfrí. Elstu börnin hafa kvatt og hafið sína grunnskólagöngu og aðlögun ungra barna er hafin. Í leikskólum Borgarbyggðar dvelja í vetur rúmlega 220 börn. Yngstu börnin eru um eins árs gömul. Grunnskólar voru settir mánudaginn 22. ágúst og …









