Þrettándagleði 2017

Þrettándagleði 2017 Þrettándagleði verður haldin í Englendingavík Borgarnesi föstudaginn 6. janúar kl. 20:00 Flugeldasýning í boði Borgarbyggðar, Björgunarsveitarinnar Brákar, Borgarnesi og Björgunarsveitarinnar Heiðars, Varmalandi. Flugeldasýning, fjöldasöngur, jólasveinar, heitt súkkulaði, smákökur og gleði.  Ekki er leyfilegt að koma með eigin flugelda á svæðið.

Málefni sveitarfélaga – styrkir til meistaranema

Samband íslenskra sveitarfélaga veitir nú í annað sinn  allt að þremur meistaranemum styrki  til að vinna lokaverkefni á sviði sveitarstjórnarmála sem tengjast stefnumörkun sambandsins 2014-2018. Til úthlutunar er að þessu sinni allt að 750.000 kr. og stefnt er að því að veita þrjá styrki. Rafrænt umsóknarform, verklagsreglur vegna úthlutunar, Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga 2014-2018, áhersluþættir við styrkveitingar til meistaranema 2017 …

Stuðningur vegna húsnæðis

Sveitarfélagið greiðir sérstakar húsaleigubætur til þeirra sem eru undir ákveðnum tekjumörkum og búa við félagslega erfiðleika og einnig húsnæðisstuðning við börn 15-17 ára sem leigja á heimavistum eða námsgörðum. Umsókn þarf að berast fyrir 15. dag mánaðar til að öðlast rétt í þeim mánuði. Sjá nánar á heimasíðu Borgarbyggðar og einnnig hér: Reglur um stuðning í húsnæðismálun samþykkt tillaga nefndar. …

Opnunartímar íþróttahúsa um áramótin

Opnunartímar íþróttahúsa um áramótin verða sem hér segir: Í Borgarnesi: Opið á gamlársdag 9-12 Lokað nýársdag Kleppjárnsreykir: Lokað gamlársdag og nýársdag Varmaland: Lokað

Borgarbraut 59

Föstudaginn 23. desember sl. felldi Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindarmála úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa Borgarbyggðar frá 3. október sl. um að samþykkja leyfi til að byggja hótelbyggingu, opinn bílakjallara og tæknirými í kjallara við Borgarbraut 59. Framkvæmdir munu því stöðvast þar til nýtt deiliskipulag hefur verið samþykkt en unnið verður að því að festa tryggilega þær einingar sem þegar er búið að reisa til …

Aðalsskipulag Borgarbyggðar 2010 – 2022

Á fundi sínum þann 22. desember sl. samþykkti sveitarstjórn Borgarbyggðar að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022 Miðsvæði Borgarnes. Tillagan er sett fram á uppdrætti og greinargerð dags. 15.12.2016. Hún felur í sér breytingu fyrir götureit innan miðsvæðis Borgarness M. Innan miðsvæðis verður skilgreindur götureitur þannig að úr verði tveir miðsvæðisreitir M1 og M3. Nýr reitur M3 er …

Frestun sorphirðu v. veðurs

Lokað er á urðunarstaðnum í Fíflholtum í dag vegna veðurs, og því er ekki unnt að hirða gráu tunnuna í Borgarnesi eins og til stóð skv. sorphirðudagatali. Sorpið verður hirt um leið og veður leyfir. Beðist er velvirðingar á óþægindunum sem þetta kann að valda.

Fréttir af skólastarfi í Borgarbyggð

Út er komið tímaritið Skólaþræðir, en það er tímarit Samtaka áhugafólks um skólaþróun. Samtökin eru umræðu- og samstarfsvettvangur fólks sem hefur áhuga á markvissri þróun skólastarfs, skólaumbótum og rannsóknum. Í fyrsta tölublaði tímaritsins má finna annars vegar grein um jólaútvarp Grunnskólans í Borgarnesi, Útvarp Óðal fm 101,3 eftir Kristínu M. Valgarðsdóttir deildarstjóra. Hins vegar má þar finna grein eftir Helgu J. Svavarsdóttir deildarstjóra Hvanneyrardeildar …

Gámastöðin Sólbakka

Vakin er athygli á að gámastöðin við Sólbakka í Borgarnesi verður lokuð um jól og áramót sem hér segir: 24.-26. Des: lokað 27.-30. Des: hefðbundinn afgreiðslutími 31.-1. Jan: lokað Frá og með 2. Jan: hefðbundinn afgreiðslutími