Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis 2017 voru kynntar af formanni Hagþenkis, Jóni Yngva Jóhannssyni, í samstarfi við Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Borgarbókasafnið fimmtudaginn 1. feb. kl. 17 í Borgarbókasafni, Grófarhúsi. Viðurkenning Hagþenkis verður veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni um mánaðamót febrúar og mars og felst í sérstöku viðurkenningarskjali og 1.250.000 kr. Á Degi bókarinnar þann 23. apríl standa Hagþenkir og …
„Það þarf samtal til að öðlast skilning, ná sátt og byggja upp traust“
Fundur um upplýsingamiðlun, samráð og framsækni í Borgarbyggð Fræðslu- og umræðufundur um upplýsingamiðlun og samráð við íbúa var haldinn í Hjálmakletti í Borgarbyggð þann 30. janúar sl. Hjá Borgarbyggð er nú unnið að mótun stefnu um upplýsingamiðlun og samráð við íbúa og síðastliðinn þriðjudag var boðið til opins fundar, til að heyra sjónarmið íbúa og ræða hvernig mætti gera betur. …
Grunnskólinn í Borgarnesi – útboð
Ríkiskaup f.h. Borgarbyggðar hefur auglýst útboð á smíði viðbyggingar við Grunnskólann í Borgarnesi ásamt endurbótum á eldra húsnæði. Opnun tilboða fer fram 6. mars n.k. Sér þá fyrir endann á löngu undirbúningsferli og munu framkvæmdir geta hafist á vordögum.
Íþróttamaður Borgarbyggðar 2017
Kjöri Íþróttamanns Borgarfjarðar var lýst á laugardaginn 22. janúar s.l. við athöfn í félagsheimilinu Þinghamri, en Umf. Stafholtstungna tók að sér að halda hátíðina að þessu sinni. Í frétt á Facebook síðu UMSB segir að margt frábært íþróttafólk hafi verið tilnefnt að þessu sinni. Ekki þurfti þó að koma á óvart að fyrir valinu varð Máni Hilmarsson úr hestamannafélaginu Skugga, …
Hákarl og hvalur í heita pottinum í Borgarnesi
Það er engin krafa um spariklæðnað eða fínar hárgreiðslur á þorrablóti pottverjanna í Borgarnesi. „Þetta bara byrjaði í pottinum. Við erum semsagt upphafsmenn þorrablótsins í Borgarnesi,“ segir Kristín Erla Guðmundsdóttir, íbúi í Borgarnesi og fastagestur í sundlauginni en pottverjarnir hafa haldið þorrablót í sundlauginni í yfir 30 ár. Krakkarnir létu sig hverfa þegar þau fréttu af hákarli í lauginni, segir fastagestur sundlaugarinnar …
Til fasteignaeigenda í Borgarbyggð
Lokið er álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð árið 2018. Álagningarseðlar verða sendir til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri og til fyrirtækja. Vakin er athygli á að allir álagningarseðlar eru aðgengilegir á „mínum síðum“ á netsíðunni www.Island.is. Einnig geta þeir sem þess óska haft samband við skrifstofu Borgarbyggðar og fengið senda álagningarseðla í pappírsformi. Gjalddagar eru tíu, sá fyrsti 23. …
Upplýsingamiðlun og samráð við íbúa
Fræðslu- og umræðufundur í Borgarbyggð Hvernig er best fyrir sveitarfélag að koma upplýsingum á framfæri við íbúa? Hvaða tækifæri hafa íbúar til aðkomu að ákvörðunum sveitarfélagsins? Þetta er til umræðu á fundi sem Borgarbyggð býður til, þriðjudaginn 30. janúar næstkomandi. Fundurinn verður sambland af fræðslu og umræðum, þar sem allir hafa jafna möguleika á að taka þátt og stinga upp …
Niðurstöður íbúakönnunar Gallup fyrir árið 2017.
Samkvæmt íbúakönnun Gallup, sem var framkvæmd í nóvember og desember á sl. ári hefur ánægja íbúanna með þjónustu sveitarfélagsins í mörgun tilvikum vaxið milli áranna 2016 og 2017. Borgarbyggð keypti niðurstöður íbúakönnunar Gallup sem gerðar voru í nóvember og desember 2017. Alls komu 167 svör úr Borgarbyggð. Án þess að það liggi nákvæmlega fyrir þá skiptast svarendur nálægt því til …
Skólanámskrá Andabæjar
Skólanámskrá Andabæjar var fyrst gefin út árið 2005, endurskoðuð 2009 og var aftur í lok ársins 2017. Við gerð skólanámskrár var unnið í hópum á skipulagsdögum starfsfólks þar sem unnið var með ýmsa þætti. Það er starfsfólks Andabæjar að skólanámskráin styðji við starfið og verði góður leiðarvísir um markvisst leikskólastarf sem einkennist af leik, gleði og vináttu og verði í …
Snjómokstur í gær þann 18. Janúar
Eins og flestir hafa tekið eftir hófst snjómokstur í þéttbýlinu í Borgarbyggð heldur seinna en ástæða var til í gærmorgun en töluvert hafði snjóað við fótaferðartíma. Rétt er að skýra frá ástæðu þess að svo var. Ekki hafði verið gert ráð fyrir snjókomu í veðurspám fyrir nóttina og því kom hún starfsmönnum í opna skjöldu. Það gerist ekki oft. Starfsmenn …








