Auglýst er eftir aðstoðarslökkviliðsstjóra til tímabundinna starfa fyrir Borgarbyggð Borgarbyggð óskar eftir að ráða aðstoðarslökkviliðsstjóra í 25% tímabundið starf í sex mánuði vegna forfalla. Um er að ræða afleysingastarf sem felst í stjórnun, útköllum og öðrum almennum störfum slökkviliðsins. Aðstoðarslökkviliðsstjóri stjórnar og ber daglega ábyrgð á Slökkviliði Borgarbyggðar í forföllum slökkviliðsstjóra. Hann hefur bakvaktaskyldu utan dagvinnutíma í samvinnu við slökkviliðsstjóra. …
Útstrikanir og breytingar á röð á framboðslistum í Borgarbyggð
Skv. lögum um kosningar til sveitarstjórna geta kjósendur breytt nafnaröð á þeim lista sem þeir kjósa eða strikað yfir nafn frambjóðanda ef kjósandinn vill hafna þeim frambjóðanda. Við sveitarstjórnarkosningarnar í Borgarbyggð 26. maí s.l. nýttu nokkrir kjósendur þennan rétt sinn og strikuðu yfir nöfn ákveðinna frambjóðenda eða breyttu röð þeirra. Á B-lista var strikað yfir 18 nöfn og röð frambjóðenda …
Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningum í Borgarbyggð eftir kjördeildum
Kjördeild Á kjörskrá Greidd atkv Hlutfall % Borgarneskjördeild 1515 1105 72,94 Brúaráskjördeild 117 85 72,65 Kleppjárnsreykjakjördeild 522 388 74,33 Lindartungukjördeild 84 68 80,95 Lyngbrekkukjördeild 123 95 77,24 Þinghamarskjördeild 274 175 63,87 Samtals 2635 1916 72,71
Skólaslit í Grunnskólanum í Borgarnesi
Skólaslit eru tvískipt. Annars vegar eru skólaslit 1. – 9. bekkja og hins vegar 10. bekkjar. – 9. bekkur Nemendur mæta við skólann kl. 10.00 þriðjudaginn 5. júní. Þaðan verður gengið í fylkingu niður í Skallagrímsgarð. Í fararbroddi verða nemendur úr 9. bekk og munu þeir slá trumbur. Þá fara nemendur í leiki sem þeir hafa valið sér – þeir …
Íþróttamót á Hnoðrabóli
Hreyfivika UMFÍ er í fullum gangi og af því tilefni var haldið íþróttamót á Hnoðrabóli í morgun, fimmtudaginn 31. maí. Börnin spreyttu sig á nokkrum íþróttagreinum og þrautabraut. Þau tóku öll þátt á sínum forsendum þar sem leikgleðin réði ríkjum og fengu þau viðurkenningu fyrir þátttöku. Slík mót hafa verið haldin á Hnoðrabóli frá því að hreyfivikna hófst fyrir nokkrum …
Betri bekkjarbragur – verkefni í grunnskólum Borgarbyggðar
Styrkur hefur fengist frá Endurmenntunarsjóði grunnskóla til að standa að verkefni um betri bekkjarbrag í grunnskólum Borgarbyggðar veturinn 2018-2019. Verkefnið felst í fræðslu, umræðum og mótun betri bekkjarbrags í öllum bekkjum grunnskóla Borgarbyggðar. Það verður gert með því að nýta starfsdaga, foreldrafundi og kennarafundi í umræður og fræðslu um hvað stuðlar að góðum bekkjarbrag og þar með góðum og jákvæðum …
Ærslabelgur
Þann 17.maí samþykkti Byggðaráð Borgarbyggðar að fjárfest yrði í svokölluðum ærslabelg og honum komið fyrir við Arnarklett. Leiktæki sem þetta þurfa svæði sem uppfylla ákveðnar forsendur eins og stærð svæðis, undirlag og aðgengi að rafmagni. Í ljós kom að rafmagn við Arnarklett („Wembley“) er ekki aðgengilegt að mati RARIK og því var brugðið á það ráð að finna belgnum nýjan …
Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Borgarbyggð 26.05.2018
Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Borgarbyggð 26.05.2018 Á kjörskrá voru 2.635 Atkvæði greiddu 1.916 sem gerir 72,7% kjörsókn Atkvæði féllu þannig. B-listi Framsóknarflokks 642 atkvæði (33,51%) og 4 menn kjörna D-listi Sjálfstæðisflokks 473 atkvæði (24,69%) og 2 menn kjörna S-listi Samfylkingarinnar og óháðra 249 atkvæði (13,00%) og 1 mann kjörinn V-listi Vinstri hreyfingarinnar grænt framboð 411 atkvæði (21,45%) og 2 menn kjörna …
Hvatning v. kosninga
Hafðu áhrif nærsamfélagið þitt og taktu þátt í sveitarstjórnarkosningunum 26. maí nk. Að hafa rétt til þess að kjósa er ekki sjálfsagt – virðum kosningaréttinn. Mundu að kjósa í sveitarstjórnarkosningunum 26. maí nk. English Have an effect on your local community by voting in the municipal elections on 26 May. We are fortunate to be able to vote – let’s …
Deiliskipulag í Einkunnum
Skipulagsstofnun hefur heimilað sveitarstjórn Borgarbyggðar að auglýsa deiliskipulag fólkvangsins Einkunna í Stjórnartíðindum. Áætlað er að auglýsingin verði birt í B-deild Stjórnartíðinda þann 7. júní og þar með öðlast skipulagið lagalegt gildi. Auglýsing um friðlýsingu Einkunna var staðfest af ráðherra 20. júní 2017, skv. auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda. Með þessu er rekinn endahnútur á skipulagsferlið sem hefur verið verið í gangi um …








