Í ljósi fréttflutnings varðandi málefni aðila að Borgarbraut 55 sendir meirihluti sveitastjórnar Borgarbyggðar frá sér eftirfarandi tilkynningu. Það er vilji meirihluta sveitastjórnar að ná samkomulagi við lóðarhafa á Borgarbraut 55 í þeirri stöðu sem nú er uppi. Í ljósi hennar ákvað meirihluti sveitastjórnar Borgarbyggðar að fá lögfræðilegt álit til að geta tekið faglega og upplýsta afstöðu í áframhaldandi samningaviðræðum. Í …
Umhverfisviðurkenningar 2018
Borgarbyggð veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera Borgarbyggð að sveitarfélagi með snyrtilega ásýnd. Veittar verða umhverfisviðurkenningar í Borgarbyggð 2018 í eftirfarandi fjórum flokkum: Snyrtilegasta bændabýlið Snyrtilegasta lóð við íbúðarhús Snyrtilegasta lóð við atvinnuhúsnæði Sérstök viðurkenning umhverfis,-skipulags- og landbúnaðarnefndar vegna umhverfismála Óskað er eftir tilnefningum í áðurnefndum flokkum og getur hver …
Steinunn sýnir í Safnahúsi
Laugardaginn 1. september kl. 13.00 verður opnuð ný sýning í Safnahúsi. Það er Steinunn Steinarsdóttir sem sýnir þar ullarmyndverk og hverfist sýningin um ýmis form sögu, eins og heiti hennar gefur til kynna. Verkefnið tengist líka sagnaheimi Safnahúss á ýmsan hátt. Steinunn segir svo um sýninguna: „Ævintýri, sögur og annar fróðleikur hafa verið mér hugleikin frá barnsaldri og ég hef …
Komdu og prófaðu!
Þann 30. ágúst kl:16-18 verður kynningadagur á þeim íþróttum sem eru í boði innan UMSB. Kynning verður á skipulögðum æfingum og starfi í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Hægt er að ganga á milli og kynna sér það sem er í boði og prófa mismunandi greinar. Á svæðinu verður um leið hægt að fá upplýsingar um þjálfara hjá félagi/deild, æfingatíma, kostnað o.fl. …
Frístund í Borgarnesi
Frístund í Borgarnesi Óskað er eftir frístundaleiðbeinendum í frístund í Borgarnesi Markhópur frístundar eru börn á aldrinum 6-9 ára. Í boði er hlutastarf þar sem vinnutíminn er frá 13:00-16:00 þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga. Helstu verkefni og ábyrgð Leiðbeina börnum í leik og starfi. Skipulagning á faglegu frístundarstarfi Samvinna við börn og starfsfólk Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla …
Menntaskóli Borgarfjarðar settur
Menntaskóli Borgarfjarðar var settur mánudaginn 21. ágúst og hófst samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 22. ágúst. Skólastarfið fer vel af stað og ekki annað að sjá en að kennarar og nemendur séu ánægðir. Nemendur skiptast á hinar fjölmörgu brautir skólans en langflestir eru á Félagsfræðabraut en svo eru Náttúrufræðibraut og Opin braut vinsælastar. Opin braut býður uppá mikið val af hálfu nemandans …
Sálfræðingur við leik- og grunnskóla Borgarbyggðar
Skólaþjónusta Borgarbyggðar auglýsir lausa til umsóknar stöðu sálfræðings. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á starfsemi skóla. Í sveitarfélaginu er meðal annars unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun, samstarf fagsviða og stofnana, svo sem um þróun úrræða fyrir börn og foreldra. Í Borgarbyggð búa um 3.800 íbúar, þar …
Starfsmaður óskast í heimaþjónustu
Starfsmaður óskast í heimaþjónustu Markmið heimaþjónustu er að efla viðkomandi til sjálfsbjargar og gera honum kleift að búa sem lengst í heimahúsi, við sem eðlilegastar aðstæður. Um er að ræða tímavinnu Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: Almenn þrif Stuðningur og hvatning Aðstoð við persónulega umhirðu Hvetja til sjálfshjálpar Vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan þjónustuþega Helstu hæfniskröfur: Hæfni í mannlegum …
Námskeið fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum
Það sem þú þarft að vita sem kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Námskeið fyrir kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum kjörtímabilið 2018-2022 Föstudaginn 7. september í Hjálmakletti, Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarnesi Dagskrá: 10:00 Inngangur Stjórnandi námskeiðsins, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, ráðgjafi hjá Ráðrík og fyrrv. sveitarstjóri. 10:15 Til hvers er ég kjörinn í sveitarstjórn? Um hlutverk sveitarstjórnarmanna og möguleika þeirra til að móta það. Eyrún …
Lokun ráðhúss.
Vegna ferðar starfsmanna ráðhússins verður skrifstofa Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, lokuð frá kl. 12 föstudaginn 24. ágúst.







