Götusópun í Borgarnesi og á Hvanneyri

Götur verða sópaðar í Borgarnesi þriðjudaginn 9. apríl, og á Hvanneyri miðvikudaginn 10. apríl. Til að tryggja að verkið gangi sem best eru íbúar beðnir að leggja bílum í bílastæði en ekki við gangstéttar. Umhverfis-og skipulagssvið

Matráður óskast í leikskólann Klettaborg í Borgarnesi

Laust er til umsóknar starf matráðs við leikskólann Klettaborg. Um er að ræða 100% starf frá 8.00-16.00. Um framtíðarstarf er að ræða frá 1. ágúst 2019. Leikskólinn er heilsueflandi leikskóli og unnið er eftir matseðlum frá Samtökum heilsuleikskóla og Handbók fyrir leikskólaeldhús. Borgarbyggð er heilsueflandi samfélag sem leggur áherslu á holla næringu í þeim stofnunum sem sveitarfélagið rekur.   Helstu …

Lausar kennarastöður við Grunnskólann í Borgarnesi

Við leitum að öflugum einstaklingum í umsjónarkennslu frá og með 1. ágúst 2019 Menntun, reynsla og hæfni: Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og sköpunarkraftur Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar Óskað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að taka þátt í virku og skapandi skólastarfi og hafa hugrekki til þess að feta nýjar leiðir. Grunnskólinn …

Áhaldahús Borgarbyggðar

Borgarbyggð óskar eftir að ráða starfsmenn í áhaldahús Borgarbyggðar Starfið felst í vinnu undir stjórn verkstjóra áhaldahússins við slátt, umhirðuverkefni á opnum svæðum, almennt viðhald og ýmsar verklegar framkvæmdir á vegum áhaldahúss. Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum eru mikilvæg svo og sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Vinnuvélaréttindi eru æskileg en ekki skilyrði. Launakjör eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og …

Atriði úr „Oliver“ og „Fiðlaranum á þakinu“ í Tónlistarskólanum

Næstkomandi þriðjudag 9. apríl  mun söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar sýna atriði úr söngleikjunum Oliver eftir Lionel Bart í þýðingu Flosa Ólafssonar og Fiðlaranum á þakinu eftir Jerry Bock í þýðingu Þórarins Hjartarsonar. Í sýningunni koma fram bæði börn og fullorðnir, með hlutverk Olivers fer Ernir Daði Arnberg Sigurðsson og í hlutverki mjólkurpóstsins Tevye í Fiðlaranum er Olgeir Helgi Ragnarsson. Leikstjóri er …

Vel sóttur Skóladagur í Borgarbyggð

Góð þátttaka var á Skóladegi Borgarbyggðar sem haldinn var laugardaginn 30. mars sl. í Menntaskóla Borgarfjarðar og Hjálmakletti. Þar kynntu skólar á öllum skólastigum í Borgarbyggð starfsemi sína og gátu gestir kynnt sér fjölbreytt og gróskumikið skólastarfi allra skólastiga í sveitarfélaginu. Þetta er í fyrsta skipti sem skólarnir kynna sig allir með þessum hætti. Boðið var upp á bíósýningar, Lubbastundir …

Lokun skrifstofu í dag, 2.4.2019

Vegna námskeiðs lokar skrifstofa Borgarbyggðar kl. 14:30 í dag. Er vonast til að þessi breyting valdi sem minnstum erfiðleikum.

Opnunartími sundlauga um páskana

Sundlaugar í Borgarbyggð – opnunartími um páska 2019 Sundlaugin í Borgarnesi 18. apríl skírdagur 0pið frá kl. 9-18 19. apríl föstudagurinn langi LOKAÐ 20.apríl laugardagur opið frá kl. 9-18 21. apríl páskadagur LOKAÐ 22. apríl annar í páskum opið frá kl 9-18 25. apríl sumardaginn fyrsta opið frá 9-18 1. maí Verkalýðsdagurinn LOKAÐ Sundlaugin á Kleppjárnsreykjum 18. apríl skírdagur LOKAÐ …

Menningarsjóður Borgarbyggðar 2019-03-29

Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Tilgangur sjóðsins er að efla menningu í Borgarbyggð og er sérstök rækt lögð við grasrót í menningarlífi. Lögð er áhersla á að styrkja einstaklinga og félagasamtök í Borgarbyggð. Styrkir eru verkefnatengdir. Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðarætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð. Fyrir árslok þarf að afhenda sjóðsstjórn stutta skýrslu um nýtingu …

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Vesturlandi

Hinrik Úlfarsson og Jóhannes Þór Hjörleifsson í Grunnskólanum í Borgarnesi höfnuðu í 1. og 2. sæti Stóru upplestrarkeppninnar á Vesturlandi. Hátíðin fór fram í Búðardal og þar leiddu saman hesta sína nemendur úr Grunnskólum á Vesturlandi. Auk Hinriks og Jóhannesar tók Valborg Elva Bragadóttir þátt í keppninni af hálfu GB. Keppnin hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu 16. nóvember …