Kvenfélag Hvítársíðu boðar til kjötsúpukvölds í Brúarási laugardaginn 9. nóvember n.k.
Það verður opið hús og nóg af súpu í boði frá kl. 19:00-21:00.
Verð: 3.000 kr á mann, 1.500 fyrir 10 ára og yngri.
Myndir frá starfi félagsins munu rúlla meðan á borðhaldi stendur.
Komum saman, gæðum okkur á matarmikilli kjötsúpu að hætti kvenfélagskvenna, spjöllum og njótum samverunnar.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!