Viðgerð á Þorsteinsgötu og svæði við íþróttamiðstöð

júlí 19, 2024
Featured image for “Viðgerð á Þorsteinsgötu og svæði við íþróttamiðstöð”

Í næstu viku (20. – 26. júlí) er stefnt að því fara í viðgerð á Þorsteinsgötu og á svæði fyrir framan íþróttamiðstöð. Meðan á viðgerð stendur og skamma stund á eftir verður lokað fyrir bílaumferð um Þorsteinsgötu. Ef svo ber undir gæti þurft að biðja fólk um að færa einhverja bíla sem standa við götuna.

Nákvæm tímasetning ræðst m.a. af veðri og biðjum við íbúa um að fylgjast með heimasíðu Borgarbyggðar.

Beðist er velvirðingar á raski sem fylgir framkvæmdum.

Leið um Skallagrímsgötu að íþróttamannvirkjum verður eftir sem áður opin.


Share: