Tilkynning vegna framkvæmdar á Borgarbraut

maí 19, 2023

Kæru íbúar

Nú styttist í að hjáleiðinni um Berugötu verði lokað og stefnt er að því að færa aksturleið yfir á nýja hjáleið um Þorsteinsgötu/Skallagrímsgötu 23.-24. maí nk. (mögulega aðeins síðar). Á meðan umferð verður um þessar götur er ekki heimilt að leggja bílum í götunum og eru því þeir sem þurfa að leggja bílum vinsamlegast beðnir um að nota bílastæði við íþróttahúsið á meðan. Eins er mjög mikilvægt að hraðatakmarkanir séu virtar og sérstaklega vel sé gætt að gangandi vegfarendum á svæðinu.


Share: