Þjónustuver Borgarbyggðar opnar á ný

janúar 31, 2022
Featured image for “Þjónustuver Borgarbyggðar opnar á ný”

Vegna tilslakana á sóttvarnaraðgerðum sem tóku í gildi frá og með 29. janúar sl. hefur þjónustuver Borgarbyggðar opnað á ný fyrir íbúa og gesti.

Vakin er athygli á því að afgreiðsla og þjónustuver sveitarfélagsins er staðsett á Bjarnarbraut 8 (Stjórnsýsluhúsið). Íbúar eru beðnir um að leita þangað með sín erindi á opnunartíma skrifstofu sem er frá kl. 09:30 – 15:00. Gengið er til hægri á jarðhæð.

Viðtalstímar hjá skipulags- og byggingarfulltrúum sveitarfélagsins eru mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 09:30 – 11:30. Nauðsynlegt er að panta viðtalstíma fyrir fram í síma 433-7100.

Opnunartími er frá kl. 09:30 til 15:00 alla virka daga.

 


Share: