Íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar auglýsa eftir kvenkyns starfsmanni í sumarafleysingar.
- Starfsmaður óskast við sundlaugina í Borgarnesi frá 30. maí til 31. ágúst 2023. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu og unnið þriðja hver helgi.
- Starfsmaður óskast við sundlaugina á Kleppjárnsreykjum frá 3. júní til 13. ágúst 2023. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu.
- Starfsmaður óskast við sundlaugina á Varmalandi frá 3. júní til 13. ágúst 2023. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öryggisgæsla og eftirlit.
- Afgreiðsla og aðstoð við viðskiptavini.
- Þrif.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
- Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.
- Hreint sakavottorð.
- Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.