Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Erum við að leita að þér?
UM STÖRFIN
- Starfsmaður óskast við sundlaugina í Borgarnesi frá 30. maí til 31. ágúst 2022. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu og unnið þriðja hver helgi.
- Starfsmaður óskast við sundlaugina á Kleppjárnsreykjum frá 1. júní til 14. ágúst 2022. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu.
- Starfsmaður óskast við sundlaugina á Varmalandi frá 1. júní til 14. ágúst 2022. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu.
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
- Öryggisgæsla og eftirlit
- Afgreiðsla og aðstoð við viðskiptavini
- Þrif
MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum
- Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum
- Hreint sakavottorð
FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ
Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kjöl eða viðkomandi stéttarfélag.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá með umsagnaraðilum og kynningarbréf.
Umsóknir skulu berast í gegnum Alfreð.
Vinnutími: Vaktavinna.
Starfshlutfall: 100% tímabundið starf.
Starfssvið: Fjölskyldusvið.
Umsóknarfrestur er til og með: 27. mars 2022.
Nánari upplýsingar veitir Ingunn Jóhannesdóttir forstöðumaður íþróttamannvirkja Borgarbyggðar, netfang: ingunn.johannesdottir@borgarbyggd.is