
Vegna sumarleyfa verður Ráðhús Borgarbyggðar lokað frá 21. júlí til 4. ágúst nk.
Ef erindið getur ekki beðið má á þessum tíma senda tölvupóst á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is
Einhver röskun getur orðið á útgáfu reikninga vegna gjalda á vegum sveitarfélagsins á þessum tíma þ.e. reikningar gætu borist aðeins seinna en vant er. Eindagi gjalda/reikninga mun samt sem áður alltaf vera 30 dagar.
Síðasti opnunardagur fyrir sumarlokun er því föstudagurinn 18. júlí, síminn opnar kl. 9.30 en móttaka gesta er frá kl. 10.00 til 14.00.
Skrifstofan opnar að nýju 5. ágúst kl. 10.00
ATH: Tilkynningarhnappur barnaverndar er og verður áfram opinn á vefsíðu okkar. Eins verður áfram hægt að senda póst á netfangið barnavernd@borgarbyggd.is