Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka

mars 2, 2023

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 16. maí 2007 reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Félög og félagasamtök geta nú sótt um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2023. Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2023 og skal umsóknum skilað í gegnum heimasíðu Borgarbyggðar, í þjónustugáttinni eða til sviðsstjóra fjármálasviðs.

Reglur og umsóknareyðublöð liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar í Borgarnesi og á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is


Share: