Í morgun var tekin ákvörðun um að fella niður skólahald í uppsveitum Borgarbyggðar vegna óveðurs.
Fyrirkomulagið á skólahaldi í dag er svohljóðandi:
Grunnskóli Borgarfjarðar
- Skólahald fellur niður á Varmalandi.
- Skólahald fellur niður á Kleppjárnsreykjum.
- Skólahald fellur niður á Hvanneyri.
Leikskólinn Hnoðraból
- Skólahald fellur niður.
Frístund á Hvanneyri
- Starfsemi fellur niður.
Grunnskólinn í Borgarnesi
- Skólahald með hefðbundnum hætti en ekki verður innanbæjarakstur seinni partinn.
Frístund í Borgarnesi
- Starfsemi með hefðbundnum hætti.
Tónlistarskóli Borgarfjarðar
- Skólahald fellur niður
Íbúar eru beðnir um að sýna aðgát og fara varlega.