Í morgun var tekin ákvörðun um að fella niður skólahald í uppsveitum Borgarbyggðar vegna óveðurs.
Fyrirkomulagið á skólahaldi í dag er svohljóðandi:
Grunnskóli Borgarfjarðar
- Skólahald fellur niður á Varmalandi.
- Skólahald fellur niður á Kleppjárnsreykjum.
- Skólahald á Hvanneyri fer fram með hefðbundnum hætti.
Leikskólinn Hnoðraból
- Skólahald fellur niður.
Leikskólinn Andabær
- Skólahald fer fram með hefðbundnum hætti.
Frístund á Hvanneyri
- Starfsemi fellur niður.
Íbúar eru beðnir um að sýna aðgát og fara varlega.