Við sveitarstjórnarkosningar 14. maí 2022 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:
Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (menntaskólanum) í Borgarnesi
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár.
- Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.
Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár.
- Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00
Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár.
- Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.
Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi
Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð.
- Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.
Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási
Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar.
- Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00
Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum á Kleppjárnsreykjum
Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals og Reykholtsdals.
- Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.
Kjósendur athugi að kjördeildirnar í Borgarnesi og á Kleppjárnsreykjum loka kl. 22 en aðrar kl. 20.
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.
Á kosningavef Stjórnarráðs Íslands kosning.is geta kjósendur kannað hvar þeir eiga að kjósa og þar eru ýmsar upplýsingar varðandi kosningarnar.
Á kjördag verður yfirkjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi. Sími hennar er 433-7708.
Talning atkvæða fer fram í Hjálmakletti og hefst þegar öllum kjörstöðum hefur verið lokað.
Yfirkjörstjórn Borgarbyggðar