Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 9. október 2024 eftirfarandi tillögu samkvæmt 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
Deiliskipulag Sigmundarstaðir – Mælimastur á Grjóthálsi
Deiliskipulagið tekur til áætlunar um að reisa mælimastur til vindrannsókna.
Tillaga að deiliskipulagi Sigmundarstaðir. Mælimastur á Grjóthálsi var auglýst frá 20.06.2024 – 18.08.2024.
Athugasemdir bárust frá hagsmunaaðilum. Brugðist var við þeim eða þeim send umsögn.
Deiliskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun og mun taka gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, Borgarnesi.
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.