Molta frá Íslenska Gámafélaginu er nú aðgengileg íbúum í sveitarfélaginu og er staðsett fyrir neðan Íþróttamiðstöðina í Borgarnesi.
Moltan sem um ræðir er töluvert gróf og hentar því vel í trjábeð.
Því miður er ekki mögulegt að fá fíngerðari moltu og eins og staðan er á framleiðslu moltunnar í dag er því miður ólíklegt að hægt sé að fá meiri moltu þetta vorið.