Leiðrétting vegna skipulagsauglýsingar – Borgarbraut 55, Breyting á deiliskipulagi

ágúst 2, 2022

Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Borgarbyggð.

Deiliskipulag Borgarbraut 55-59

Byggðarráð, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar, samþykkti þann 14. júlí 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Borgarbraut 55-59 frá árinu 2007 m.s.br. í Borgarnesi.

Breytingartillagan tekur til lóðar nr. 55 þar sem gerð er breyting á byggingarreit og bílastæðum, hámarks hæð, fjölda íbúða og þakhalla. Breytingin er í kjölfar aðalskipulagsbreytingar þar sem nýtingarhlutfall er hækkað úr 0,58 í 0,63.

Ofangreind skipulagsáætlun er aðgengilegar á heimasíðu Borgarbyggðar www.borgarbyggd.is frá 27. júlí til og með 8. september 2022. Ef óskað er eftir nánari kynningu á ofangreindri áætlun þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við auglýsta skipulagstillögu og er frestur til að skila inn athugasemdum til 8. september 2022. Athugasemdum skal skila skriflega í Ráðhús Borgarbyggðar, Bjarnabraut 8, 310 Borgarnesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is eða thjonustuver@borgarbyggd.is.

Borgarbyggð, 2. ágúst 2022.

Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar.


Share: