Verkstjóri í vinnuskólanum Borgarnesi
Laust er 100% starf sumarstarf verkstjóra í vinnuskólanum í Borgarnesi frá 7. júní – 20. ágúst eða eftir nánara samkomulagi. Verkstjórinn stjórnar og samræmir vinnu flokkstjóra sem hann hefur umsjón með.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skipuleggur störf vinnuskólans með tómstundafulltrúa.
- Vinnur í góðu samstarfi við áhaldahús.
- Leiðbeinir nemendum.
- Er í góðum samskiptum við foreldra vinnuskólanemenda.
- Á í samskipti við ýmsar stofnanir sem tengjast vinnuskólanum.
- Ber ábyrgð á að halda utan um vinnustundir nemenda.
- Skilar greinargerð um sumarstarfið.
Hæfniskröfur og skilyrði:
- Hafa náð 20 ára aldri.
- Áhugi á að vinna með unglingum.
- Frumkvæði, gleði og sjálfstæði.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla sem nýtist í starfi er kostur.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsókn skal skilað ásamt ferilskrá á netfangið atvinna@borgarbyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 21. maí.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Guðmundsson tómstundafulltrúi Umsb david@umsb.is
Flokkstjóri vinnuskólanum Borgarnesi
Laust er 100% sumarstarf flokkstjóra í vinnuskólanum í Borgarnesi frá 14. júní – 20 ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Aðstoðar við skipulagningu á starfi vinnuskólans.
- Leiðbeinir nemendum.
- Er í góðum samskiptum við foreldra vinnuskólanemenda.
- Vinna með börnum í þeim verkefnum sem þarf að leysa.
Hæfniskröfur og skilyrði:
- Hafa náð 18 ára aldri.