Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskornum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Erum við að leita að þér?
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur opinbert eftirlit og umsjón með skipulagsmálum, sbr. lög nr. 123/2010 með síðari breytingum.
- Framkvæmd skipulagsmála og leyfa.
- Gerir auglýsingar og kynningar varðandi skipulagsmál, þar með talið í Stjórnartíðindum.
- Lögformlega afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.
- Aðstoðar við viðhald og varðveislu uppdrátta og skjala vegna opinbers vegna skipulagsmála í samræmi við ákvæði laga og reglugerða þar um.
- Aðstoðar við útreikninga og að reikningar séu gefnir fyrir gjöldum er varðar skipulagsmál samkv. gjaldskrá Borgarbyggðar.
- Veitir upplýsingagjöf og ráðgjöf um skipulags- og byggingarmál í Borgarbyggð.
- Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af deildarstjóra skipulags- og byggingarmála.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi, þ.m.t. í Skipulagsfræði, umhverfisskipulagi eða landslagsarkitektúr
- Góð almenn tölvukunnátta, þekking á OneSystem er kostur
- Þekking og reynsla sem nýtist í starfi
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
- Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Nákvæmni og skipulagning í vinnubrögðum
- Þekking og hæfni í íslensku, bæði töluðu sem rituðu máli. Reynsla af textagerð, s.s. skýrslugerð æskileg.