Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskornum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Erum við að leita að þér?
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirferð séruppdrátta, þ.e. burðarþols-, lagna,- raflagna- og deiliteikningar.
- Yfirferð eignaskiptasamninga og afgreiðsla til Þjóðskrá Íslands.
- Skráning byggingarstjóra, hönnuða og iðnmeistara
- Aðstoða byggingarstjóra við uppsetningu og skráningu á úttektarappi byggingarstjóra.
- Aðstoðar við viðhald og varðveislu uppdrátta og skjala vegna byggingamála í samræmi við ákvæði laga og reglugerða þar um.
- Uppsetning á vottorðum, þ.e. byggingarleyfis-, öryggis- og lokaúttektarvottorð.
- Úttektir, þ.e. fokheldis-, öryggis-, loka- og stöðuúttektir.
- Eftirfylgni byggingarleyfisumsóknar vegna verkstöðu og byggingarstigs.
- Skráning mannvirkja í kerfi Þjóðskrár Íslands og uppfærsla á byggingarstigi o.fl.
- Veitir upplýsingagjöf og ráðgjöf um skipulags- og byggingarmál í Borgarbyggð.
- Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af deildarstjóra skipulags- og byggingarmála.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gerð er krafa um háskólamenntun í verk-tækni eða byggingarfræði.
- Góð almenn tölvukunnátta, þekking á OneSystem er kostur.
- Þekking og reynsla sem nýtist í starfi.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
- Nákvæmni og skipulögð vinnubrögð.
- Þekking og hæfni í íslensku, bæði töluðu sem rituðu máli.