Laust starf stuðningsfulltrúa í búsetuþjónustu

október 18, 2021
Featured image for “Laust starf stuðningsfulltrúa í búsetuþjónustu”

Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.

Á þeirri vegferð sem framundan er ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði að framúrskarandi þjónustu og öflugu vinnuumhverfis.

Erum við að leita að þér?

HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ

  • Markmið er að gera einstaklingum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og/eða taka virkan þátt í samfélaginu. Áhersla er lögð einstaklingsmiðaða þjónustu og valdeflingu þjónustuþega.
  • Keyra matarbakka til aldraðra og öryrkja.
  • Sinnir öðrum störfum sem honum eru falin af yfirmanni.

MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR

  • Góð almenn menntun
  • Félagsliðamenntun æskileg
  • Íslenskukunnátta æskileg
  • Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
  • Ökuréttindi skilyrði
  • Hreint sakavottorð

FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ

Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kjöl eða viðkomandi stéttarfélag.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við á og starfsvottorð. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsóknir skulu berast í gegnum Alfreð.

Vinnutími: Vaktavinna

Starfshlutfall: Afleysingarstarf til áramóta með möguleika á áframhaldandi ráðningu

Starfssvið: Fjölskyldusvið

Umsóknarfrestur er til og með: 31. október 2021

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Guðmundsdóttir, netfang: gudbjorg.gudmundsdottir@borgarbyggd.is eða í síma 4337280

 

 


Share: