Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúin að taka þátt í virku og skapandi skólastarfi með nemendum, samstarfsfólki og foreldrum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg afgreiðsla og símsvörun
- Annast skráningu í Mentor
- Annast undirbúning – og frágangsvinnu við upphaf og lok skólaárs
- Sér um pantanir fyrir skólann
- Annast skjalavörslu og ýmis konar skýrslugerð
- Sér um skráningar vegna mötuneytis
- Umsjá með heimasíðu skólans
- Önnur störf sem ritara er falið
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð tölvukunnátta nauðsynleg
- Rík þjónustulund og samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar
Sótt er um á starfasíðu Borgarbyggðar hér: https://alfred.is/vinnustadir/borgarbyggd-3/storf
Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður skóli með um 320 nemendur í 1.–10. bekk og tekur virkan þátt í skólasamfélagi Borgarbyggðar. Skólinn er teymiskennsluskóli og vinnur eftir áherslum Uppeldis til ábyrgðar.
Mikil þróun á sér stað innan Grunnskólans í Borgarnesi og einstakt tækifæri fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem starfsfólk skólans myndar.
Umsóknarfrestur er til 19. maí 2023.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Valgarðsdóttir í síma 433 7400/ 433 7402
eða á netfanginu kristinv@grunnborg.is.