Auglýst er eftir sérkennslustjóra til starfa í Andabæ á Hvanneyri. Um er að ræða 75% stöðu. Sérkennslustjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra og öðrum lögum sem við eiga, aðalnámskrá leikskóla, stefnu viðkomandi sveitarfélags og skólanámskrá leikskólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar ásamt leikskólastjóra
- Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans
- Ber ábyrgð á miðlun upplýsinga milli sérkennsluráðgjafa, foreldra og þeirra sem koma að sérkennslu
- Hefur umsjón með uppeldis-og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu, gerð verkefna og gerð einstaklingsnámskráa
- Tekur þátt í stjórnendateymi skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, Bs. í sálfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg
- Reynsla af sérkennslu
- Reynsla af starfi í leikskóla
- Lipurð og svegjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
- Góð tölvukunnátta