Laust starf leikskólakennara á Hnoðrabóli

maí 3, 2023

Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Laust er til umsóknar 100% staða leikskólakennara.

Leitað er eftir einstaklingum sem er tilbúnir til að viðhalda og byggja upp öflugt skólasamfélag.

Hnoðraból er í nýju húsnæði við grunnskólann að Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal. Leikskólinn er tveggja deilda og þar dvelja að jafnaði um 30 börn og störfum við eftir hugmyndafræðinni Leiðtoginn í mér. Við skólann starfar samstillt og metnaðarfullt starfsfólk sem leggur áherslu á að mæta fjölbreytileika barnahópsins með virðingu og stuðla að vellíðan barna og góðum skólabrag.

Helstu verkefni og ábyrgð

Leikskólakennari vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og stefnu sveitarfélag

 

Menntunar- og hæfniskröfur

Leikskólakennaramenntun

Góð færni í mannlegum samskiptum

Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður

Góð íslenskukunnátta

Reynsla af menntun og uppeldi leikskólabarna

Ef ekki fæst leikskólakennari í starfið kemur til greina að ráða starfsmennmeð háskólapróf eða aðra uppeldismenntun og /eða reynslu.

 

 


Share: