Laust starf leikskólakennara á Andabæ

febrúar 14, 2022
Featured image for “Laust starf leikskólakennara á Andabæ”

Okkur vantar leikskólakennara í leikskólann Andabæ á Hvanneyri. Um er að ræða 100% stöðu. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum. Við erum Grænfánaskóli og Heilsuleikskóli síðan einnig erum við að vinna með verkefnið Leiðtoginn í mér, sjö venjur til árangurs en það er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Borgarbyggð. Leikskólinn er vel staðsettur í fallegu umhverfi kletta og náttúru.

Helstu verkefni og ábyrgð

Leikskólakennari fylgist með nýjungum á sviðið kennslu og er virkur þátttakandi í faglegri umræðu leikskólans. Hann vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennararéttindi
  • Sterk fagleg sýn
  • Jákvæðni, frumkvæði og metnaður
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Góð tölvukunnátta

 


Share: