Aldan er verndaður vinnustaður, hæfingar- og dagþjónusta fyrir fólk með skerta starfsgetu. Unnið er við dósamóttöku og hæfingu, í hæfingu er unnið að ýmsum verkefnum til að auka hæfni starfsmanna á sem flestum sviðum, sem dæmi eru saumaðir pokar og gerð kerti auk fjölda annarra verkefna.
Megin viðfangsefni leiðbeinanda er að virkja starfsmenn til þátttöku á vinnustað og aðstoða við daglegar athafnir. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu. Við leitum að einstakling sem mætir þörfum starfsmanna á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ýta undir færi og sjálfstæði starfsmanna í vinnu og daglegum athöfnum t.d með því að hvetja þá til að gera sem mest sjálfir og hrósa þeim fyrir viðleitni á þá átt.
- Leitast við að styðja starfsmenn í félagslegum samskiptum á vinnustað.
- Þekking eða áhugi á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki og fólki með fjölþættan vanda, ekki skilyrði en kostur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Borgarbyggðar