Okkur vantar kennara í leikskólann Andabæ á Hvanneyri. Um er að ræða 100% stöðu. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt í og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum. Við erum Grænfánaskóli og Heilsuleikskóli einnig erum við að vinna með verkefnið Leiðtoginn í mér, sjö venjur til árangurs en það er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla í Borgarbyggð. Leikskólinn er vel staðsettur í fallegu umhverfi kletta og náttúru.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennari fylgist með nýjungum á sviðið kennslu og er virkur þátttakandi í faglegri umræðu leikskólans. Hann vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna og tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildarstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennararéttindi
- Sterk fagleg sýn
- Jákvæðni, frumkvæði og metnaður
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta
- Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
- Góð tölvukunnátta