Laust starf húsvarðar í félagsheimilinu Þinghamri

júní 16, 2022
Featured image for “Laust starf húsvarðar í félagsheimilinu Þinghamri”

Starf húsvarðar í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi er laust til umsóknar. Um er að ræða 30-50% starf og er tímabundið til eins árs. Í starfinu felst einnig tilfallandi kvöld og helgarvinna sem stjórnast af aðsókn að húsinu og tímasetningu viðburða sem haldnir eru.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hefur umsjón og eftirlit með félagsheimilinu Þinghamri.
  • Starfar við og hefur umsjón með húseignum, tækjum og innanstokksmunum.
  • Sér um opnun/lokun húsnæðis og annast smávægilegt viðhald.
  • Annast bókanir vegna félagsheimilisins og er til staðar þegar það er í notkun.
  • Fylgist með að umhirðu lóðar sé ekki ábótavant.
  • Situr nefndarfundi húsnefndar.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Lipurð og færni í samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur .

 

 


Share: