Borgarbyggð óskar eftir að ráða öflugan liðsmann til að sinna starfi forstöðumanns menningarmála í sveitarfélaginu.
Forstöðumaður menningarmála ber ábyrgð á menningarmálum sveitarfélagsins, ber þar með ábyrgð á Safnahúsi og menningarmiðstöðinni Hjálmakletti. Næsti yfirmaður hans sveitastjóri en atvinnu-, markaðs- og menningarmálanefnd er stjórn Safnahússins. Forstöðumaður stjórnar rekstri Safnahússins og þeirra safna sem það hýsir og er þar með yfirmaður annarra starfsmanna þar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á rekstri Safnahúss og er yfirmaður starfsmanna Safnahúss.
- Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á rekstrarlegum þáttum Safnhúss.
- Ber ábyrgð á menningarmálum sveitarfélagsins, útfærir og þróar menningarmál í heild hjá sveitarfélaginu, í samstarfi við stofnanir Borgarbyggðar, félagsheimili, menningarstofnanir í sveitarfélaginu og aðra aðila innan sem utan sveitarfélagsins.
- Ábyrgð á að framkvæmd safna- og menningarmála sé í samræmi við skýrslu um framtíðarfyrirkomulag Safnahúss, stefnu sveitarfélagsins, lög og reglugerðir um söfn og menningarmál.
- Ábyrgð og umsjón með öflun styrkja og styrktaraðila fyrir Safnahúsið.
- Undir sviðið heyrir einnig menningarmiðstöðin Hjálmaklettur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gerð er krafa um háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi.
- Gerð er krafa um farsæla reynslu af rekstri og starfsmannahaldi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og framúrskarandi samstarfshæfni.
- Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Þekking og reynsla af safna- og menningarstarfi.