Borgarbyggð auglýsir eftir félagsráðgjafa til starfa við móttöku flóttafólks frá Úkraínu. Fólkið mun dvelja á Bifröst í Borgarfirði meðan útvegað er varanlegra búsetuúrræði. Dvöl á Bifröst verður að hámarki 12 vikur. Um getur verið að ræða allt að 150 manns, börn og fullorðna. Félagsráðgjafinn mun starfa í öflugu þverfaglegu teymi. Starfið felst í móttöku flóttafólksins og þjónustu við það, s.s. félagslegri aðstoð og fjárhagsaðstoð. Félagsráðgjafi veitir ráðgjöf og greinir fólknar þarfir skjóstæðinga, s.s. fyrir aðstoð sérfræðinga, skipuleggur hana og samhæfir í samvinnu við verkefnastjóra og aðra starfsmenn verkefnisins. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Um er að ræða tímabundna ráðningu í þrjá mánuði.
- Skipulag móttöku fólskins í þverfaglegu teymi.
- Meðferð málefna einstaklinga og hópsins í heild.
- Greining á þörfum einstaklinga og hópsins.
- Skipulag félagslegrar þjónustu.
- Umsjón með framfærsu/fjárhagsaðstoð.
- Skipuleggur þjónustu sérfræðina fyrir einstaklinga og hópinn.
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf.
- þekking og reynsla af vinnu með flóttafólki æskileg.
- Þekking og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu.
- Lipurð í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
- Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
Umsóknir skulu berast í gegnum Alfreð.