Fjölmörg spennandi og krefjandi störf eru auglýst laus til umsóknar í Borgarbyggð um þessar mundir. Um er að ræða framtíðarstörf sem og tímabundnar ráðningar.
- Leikskólakennari á Hnoðraból
- Sérkennslustjóri á Hnoðraból
- Leikskólakennari í Andabæ
- Stuðningsfulltrúi við Grunnskólann í Borgarnesi
- Kennari við Grunnskóla Borgarfjarðar
- Stuðningsfulltrúar í Búsetuþjónustu Borgarbyggðar
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um störfin í gegnum Alfreð – starfasíðu Borgarbyggðar.
Vinsamlegast athugið að umsóknarfrestur getur verið breytilegur eftir starfi.