Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir starfsmanni í samþætt starf skólaliða og leiðbeinanda í frístund við Kleppjárnsreykjadeild skólans í 70% stöðu frá 1. desember 2021 til 8. júní 2022
Vinnutími 10:30-16:00
Skólinn vinnur eftir gildum heilsueflingar og grænfána og er leiðtogaskóli. Nánar um stefnu skólans er á heimasíðunni www.gbf.is Skólaliði tekur þátt í uppeldisstarfi og öðrum störfum sem fram fara innan skólans. Megin áhersla er lögð á velferð og vellíðan nemenda.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sér um daglega ræstingu skv. nánari lýsingu, heldur húsnæði og lóð skólans hreinni og snyrtilegri skv. vinnuáætlun.
- Aðstoðar nemendur í leik og starfi, leiðbeinir þeim í samskiptum þeirra við aðra nemendur og starfsfólk skólans.
- Hefur umsjón með nemendum í frímínútum og matartímum úti og inni. Fylgir nemendum á milli kennslusvæða og einnig í búningsklefum ef með þarf.
- Fylgist með nemendum í hléum milli kennslustunda, leiðbeinir þeim í samskiptum.
- Hefur umsjón með nemendum í frístund.
- Aðstoðar nemendur ef með þarf við að ganga frá fatnaði sínum og hefur umsjón með fatahengi og óskilamunum
- Aðstoðar starfsfólk í mötuneyti á álagstímum samkvæmt vinnuáætlun
Menntun og hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi í skóla æskileg
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Frekari upplýsingar um starfið:
Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á. Umsókn skal einnig fylgja kynningarbréf.
Umsóknir skulu berast í gegnum Alfreð.
Öllum umsóknum verður svarað.
Vinnutími: Dagvinna frá kl. 10:30 – 16:00
Starfshlutfall: 70%
Starfssvið: Fjölskyldusvið
Umsóknarfrestur er til og með: 10. nóvember 2021
Nánari upplýsingar veitir Helga Jensína Svavarsdóttir skólastjóri, netfang: helga.jensina.svavarsdottir@gbf.is – símanúmer: 8611661