Óskað er eftir leikskólakennara í fasta stöðu. Umsækjandi þarf að hafa leyfisbréf til notkunar á starfheitinu kennari með áherslu eða reynslu á leikskólastarfi. Leitað er eftir einstaklingum sem er tilbúnir til að viðhald og byggja upp öflugt skólasamfélag.
Hnoðraból er í nýju húsnæði við grunnskólann að Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal. Leikskólinn er tveggja deilda og þar dvelja að jafnaði um 30 börn og störfum við eftir hugmyndafræðinni Leiðtoginn í mér. Við skólann starfar samstillt og metnaðarfullt starfsfólk sem leggur áherslu á að mæta fjölbreytileika barnahópsins með virðingu og stuðla að vellíðan barna og góðum skólabrag.
HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ
Leikskólakennari vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og stefnu sveitarfélagsins.
MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR
- Leikskólakennararéttindi
- Færni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður
- Góð íslenskukunnátta
- Reynsla af menntun og uppeldi leikskólabarna
FREKARI UPPLÝSINGAR UM STARFIÐ
Vinnutími: dagvinna
Starfshlutfall: 100%
Starfsvið: fjölskyldusvið
Umsóknarfrestur: til og með 4. júlí 2021
Umsókn skal senda á netfangið: sjofn@borgarbyggd.is. Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum ef við á. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Við hvetjum áhugasama um að sækja um óháð kyni og uppruna.
Nánari upplýsingar veitir Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir leikskólastjóri í síma 433-7180 eða 862-0064.