Laus staða aðstoðarmatráðs við Grunnskólann í Borgarnesi

júní 1, 2021
Featured image for “Laus staða aðstoðarmatráðs við Grunnskólann í Borgarnesi”

Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður skóli með rúmlega 300 nemendur í 1.–10. bekk og tekur virkan þátt í skólasamfélagi Borgarbyggðar.

Mikil þróun á sér stað innan skólans og einstakt tækifæri fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem starfsfólk skólans mynda.

Vegna fæðingarorlofs leitum við eftir aðstoðarmatráði til að starfa með okkur eitt skólaár, frá 15. ágúst 2021 – 9. júní 2022.

Megin verkefni eru:

  • Aðstoð í eldhúsi og í matsal
  • Umsjón með frágangi og þrifum í eldhúsi
  • Þarf að geta leyst matreiðslumann af
  • Vinnur eftir gildum, stefnu og áherslum skólans

Menntun, reynsla og hæfni:

  • Reynsla af starfi í eldhúsi æskileg.
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
  • Jákvæðni, ábyrgðarkennd og lausnamiðun.

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2020

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknir skal senda til Júlíu Guðjónsdóttur skólastjóra, julia@grunnborg.is einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá henni í síma 862-1519 eða hjá Snæbirni kokki í síma 778-1602.

 


Share: