Laus lóð til úthlutunar

ágúst 18, 2022

Borgarbyggð auglýsir lausa lóð til úthlutunar í sveitarfélaginu. Um er að ræða einbýlishúsalóð við Ásveg 12 á Hvanneyri. Lóðinni verður úthlutað á fundi byggðarráðs 15. september nk.

Berist fleirien ein umsókn verður dregið á milli umsækjenda að viðstöddum fulltrúa sýslumanns.

Um auglýsingu og úthlutun lóða gilda úthlutunarreglur Borgarbyggðar frá árinu 2021. Umsóknareyðublöð, lóðarblöð, gjaldskrár, skipulags- og byggingarskilmálar og aðrar upplýsingar er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins, undir lausar lóðir.

Umsóknarfrestur er til og með 8. september 2022.


Share: