Hunda- og kattahreinsun 2022

nóvember 23, 2022
Featured image for “Hunda- og kattahreinsun 2022”

Lögbundin hunda- og kattahreinsun verður í Borgarbyggð sem hér segir: 

Borgarnes 28. nóvember í áhaldahúsi að Sólbakka 4.

  • Fyrir hunda: kl. 16:30 – 19:00
  • Fyrir ketti kl. 19:15- 20:15

Umsjón: Gunnar Gauti Gunnarsson

Hvanneyri 29. nóvember í “gamla BÚT-húsinu” kl. 16:30 – 19:00.

Umsjón: Edda Þórarinsdóttir.

Bifröst 30. nóvember í kyndistöðinni kl. 16:30 – 18:00.

Umsjón: Gunnar Gauti Gunnarsson.

Borgarnes 5. desember í áhaldahúsi að Sólbakka 4 kl. 17: 00 – 19:00.

Umsjón: Þorgerður Bjarnadóttir

Skráningarskylda er á öllum hundum og köttum í þéttbýli Borgarbyggðar. Lögum samkvæmt skulu allir hundar, kettir og kanínur vera örmerkt og skráð í miðlægan gagnagrunn, www.dyraaudkenni.is.

Skylt er að ormahreinsa alla hunda 4 mánaða og eldri árlega, ormahreinsunin er innifalin í leyfisgjaldi sveitarfélagsins. Óskráð gæludýr eru velkomin en skrá þarf dýrin í gegnum þjónustugátt á heimasíðu sveitarfélagsins.

Gæludýraeigendum er frjálst að nýta þjónustu annarra dýralækna og skila vottorði fyrir áramót um að dýr þeirra hafi verið hreinsuð annars staðar.

Upplýsingar um gæludýrahald í Borgarbyggð er að finna á heimasíðu Borgarbyggðar. Þá er hægt að hafa samband í síma 433-7100 eða í gegnum netfangið thjonustuver@borgarbyggd.is.


Share: