Hreinsunarátak í þéttbýli 22. – 29. apríl nk.

apríl 12, 2022
Featured image for “Hreinsunarátak í þéttbýli 22. – 29. apríl nk.”

Gámar fyrir gróðurúrgang, sorp og timbur verða aðgengilegir vikuna 22. – 29. apríl nk. á eftirfarandi stöðum:

• Bifröst
• Varmaland
• Hvanneyri – BÚT-hús.
• Kleppjárnsreykir – gryfjan við Litla-Berg.

Þegar gáma eru að fyllast, hafið samband við Gunnar hjá ÍGF, í síma 840-5847.

Vakin er athygli á því að gámar eru EKKI fyrir úr sér gengin ökutæki!

Minnt er á ákvæði byggingarreglugerðar:

„Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götur, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“ 

Afgreiðslutímar í móttökustöð við Sólbakka Gámastöðin við Sólbakka:

  • Sunnudaga til föstudags kl. 14:00 og 18:00
  • Laugardaga kl. 10:00 og 14:00.

Share: