Borgarbyggð og UMSB leita eftir einstaklingum sem geta verið með námskeið á haustönn 2021, til að mynda íþróttaæfingar, leiklistarnámskeið eða listasmiðjur fyrir börn í Borgarbyggð.
Námskeiðin eru ætluð börnum í 1.-4. bekk og fara fram á Varmalandi, Kleppjárnsreykjum, Borgarnesi og á Hvanneyri. Námskeiðin þurfa að fara fram á virkum dögum frá 14:00-17:00.
Nánari upplýsingar veitir Sigga Dóra, tómstundafulltrúi á siggadora@umsb.is.