Óskað er eftir einstaklingum í skemmtilegt og skapandi starf með börnum og ungmennum í félagsmiðstöðinni Óðal í Borgarnesi. Markhópur Óðals eru börn í 5.-7.bekk og unglingar í 8.-10.bekk. Í boði er hlutastarf þar sem vinnutíminn er síðdegis og á kvöldin. Starfshlutfall er frá 30-50%.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Leiðbeina börnum og ungmennum í leik og starfi.
- Samvinna við börn og ungmenni, starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfi Óðals.
- Viðkomandi hefur umsjón og tekur þátt í undirbúning á faglegu félagsmiðstöðvarstarfi í samvinnu við tómstundafulltrúa.
Hæfniskröfur:
Mikilvægt að hafa mikinn áhuga á því að starfa með börnum og ungmennum. Sýna frumkvæði, gleði og sjálfstæði í starfi og hafa góða færni í mannlegum samskiptum. Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.
Frekari upplýsingar um starfið:
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Sigga Dóra, tómstundafulltrúi á netfanginu siggadora@umsb.is