Framkvæmdir á Sólbakka

febrúar 9, 2022
Featured image for “Framkvæmdir á Sólbakka”

Vegna framkvæmda á lóð Borgarverks á Sólbakka hyggst fyrirtækið hefja vinnu við sprengingar á svæðinu á morgun, fimmtudaginn 10. febrúar. Áætlað er að vinnan standi yfir næstu þrjár vikur.

Ekki verður sprengt á fyrirfram ákveðnum tíma en stefnt er að því að það verði að öllu jöfnu gert seinnipart dags.

Framkvæmdaraðilar munu ræða við eigendur og starfsfólk nærliggjandi húsa áður en vinna hefst.

Framkvæmdaraðilar munu gefa hljóðmerki áður en sprengt verður.

Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.


Share: