Götulokanir í Bjargslandi

október 6, 2022
Featured image for “Götulokanir í Bjargslandi”

Tilkynning frá Veitum

Á næstunni hefst vinna Veitna við útskipti á götulokum fyrir kalt vatn í Bjargslandi. Því fylgir óhjákvæmilega rask og tafir á umferð, en gert er ráð fyrir að loka þurfi annarri akrein á viðkomandi götum meðan á framkvæmdum stendur.

Verkið verður áfangaskipt og unnið á einum stað í einu og því er raskið tímabundið á hverjum stað.

Áætlað er að hefja verkið mánudaginn 10. október og gert er ráð fyrir að verkið taki tvær vikur.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.


Share: