Dósamóttaka Öldunnar opnar í dag, miðvikudaginn 6. apríl á nýjum stað en starfsemin er nú staðsett á Sólbakka 4.
Opnunartími helst óbreyttur og er svohljóðandi:
- Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 12:30 – 15:00.
Einungis er tekið á móti sendingum sem búið er að flokka og telja.
Flokkun og talning:
Áldósir í sérpoka – talið
Plastflöskur í sérpoka – talið
Glerflöskur í sérpoka – talið
Vakin er athygli á því að starfsmenn Öldunnar telja ekki sendingar á staðnum og taka ekki við óflokkuðum og ótöldum sendingum.
Skilagjald verður greitt með millifærslu.