Móttaka fyrir skilagjaldaskyldar umbúðir opnar aftur 1. nóvember.
Vakin er athygli á því að dósamóttakan er sem fyrr staðsett að Borgarbraut 55.
Opnunartíminn er sem hér segir:
- Mánudaga frá kl. 12:30 – 15:00
- Miðvikudaga frá kl. 12:30 – 15:00
- Fimmtudaga frá kl. 12:30 – 15:00
Eingöngu er tekið á móti sendingum sem búið er að flokka og telja. Starfsmenn Öldunnar telja ekki sendingar á staðnum og taka ekki við óflokkuðum og ótöldum sendingum.
Flokkun og talning:
- Álsdósir taldar í sérpoka
- Plastdósir taldar í sérpoka
- Glerflöskur taldar í sérpoka
Skilagjald verður greitt með millifærslum.