Búið að loka fyrir umferð í Einkunnir

maí 12, 2021
Featured image for “Búið að loka fyrir umferð í Einkunnir”

Vakin er athygli á því að nú er í gildi hættustig almannavarna vegna hættu á gróðureldum á Suður-og Vesturlandi.

Að beiðni Slökkviliðsstjóra Borgarbyggðar hefur nú verið lokað fyrir umferð inn í fólkvanginn Einkunnir og verður vegurinn lokaður meðan núverandi viðbúnaðarstig er í gildi.

Nánari upplýsingar um hættustig almannavarna vegna hættu á gróðureldum er að finna hér


Share: