Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 13. apríl 2023 eftirfarandi tillögur samkvæmt 32. gr. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
- Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022, Breiðabólsstaður 2 í Borgarbyggð
- Nýtt deiliskipulag fyrir Breiðabólsstað 2 í Reykholtsdal – Reykholtsbyggð
Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022
Breytingin tekur til stækkunar á þéttbýli í Reykholti og er landnotkun á 35 ha breytt úr landbúnaði í íbúðabyggð og opið svæði. Athafnasvæði A1 er fellt niður. Núverandi íbúðarsvæði er stækkað úr 2,3 ha í 28,6 ha og skilgreind eru þrjú opin svæði.
Deiliskipulag fyrir Breiðabólsstað 2 í Reykholtsdal – Reykholtsbyggð
Deiliskipulagið tekur til ofangreinds svæðis þar sem íbúðarsvæði (íb3) er stækkað um 26,3ha og verður þá 28,6ha að stærð. Gert er ráð fyrir alls 99 lóðum, þar af einni lóð undir verslun og þjónustu en hinar undir íbúðarhús. Aðkoma að svæðinu er frá Hálsasveitarvegi (518) og Reykholtsdalsvegi (519).
Áætlunirnar voru auglýstar frá 18. janúar til og með 9. mars 2023. Athugasemdir bárust frá hagsmunaaðilum og var brugðist við þeim eða send umsögn.
Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins. Deiliskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun og mun taka gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögurnar og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulags- og byggingardeildar Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, Borgarnesi.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.