Vegna framkvæmda við Borgarbraut 63 verður innkeyrslan við heilsugæsluna og dvalarheimilið þrengd tímabundið. Umferð verður einnig opnuð frá Kveldúlfsgötu að vestanverðu á planið við heilsugæsluna. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Vegfarendur eru beðnir um að virða hámarkshraða og sýna aðgát.