Borgarbyggð auglýsir eftir geymsluhúsnæði, iðnaðarhúsnæði eða öðru húsnæði sem hýst getur slökkvibifreið- og búnað á Hvanneyri eða í nágrenni.
Húsnæðið verður miðstöð útkallseiningar. Sveitarfélagið skoðar bæði skammtíma- og langtímalausnir.
Innkeyrsluhurð þarf að lágmarki að vera 3m á hæð og 2,8m á breidd.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Þorsteinsson slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar í síma 862-6222 eða thjonustuver@borgarbyggd.is.